Skip to main content Skip to footer

Breytingar á framkvæmdastjórn Wise

Árangursrík stafræn vegferð viðskiptavina í fyrirrúmi

Breytingar hafa verið gerðar á framkvæmdastjórn Wise en Ragnar Már Magnússon hefur komið inn og tekið við sem framkvæmdastjóri ráðgjafasviðs. Á sama tíma tekur Stefán Þór Stefánsson að sér nýtt hlutverk innan Wise og verður framkvæmdastjóri nýstofnaðs sölu- og markaðssviðs þar sem hann mun meðal annars halda utan um alla erlenda sölu og stýra verkefnum tengdum samstarfsaðilum Wise.


„Hjá okkur er viðskiptavinurinn ávallt í fyrsta sæti og við viljum styðja við stafræna vegferð þeirra með því að bjóða fyrsta flokks lausnir og þjónustu. Með þessum breytingum erum við að styrkja meginstoðir fyrirtækisins ríkulega og erum þar af leiðandi vel í stakk búin til þess að þjónusta okkar viðskiptavini og sækja enn frekar fram. Ragnar kemur inn með gríðarmikla reynslu á þessu sviði og viðskiptavinir okkar eru í góðum höndum hjá honum og hans teymi.“  segir Jóhannes Helgi Guðjónsson, forstjóri Wise.

Ragnar hefur yfir 20 ára reynslu á sviði upplýsingatækni og hefur m.a. byggt upp greiningardeildir, stýrt hugbúnaðarþróun og leitt stafræn umbreytingarverkefni. Á meðal fyrirtækja sem Ragnar hefur áður starfað hjá eru Össur og Advania. Ragnar er með meistaragráðu í stjórnun með áherslu á þjónandi forystu frá Háskólanum á Bifröst ásamt því að vera með B.Sc. gráðu í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík. 

 

„Ég tekur auðmjúkur við nýju starfi og hlakka til að starfa með öllum þeim flottu sérfræðingum sem vinna hjá Wise. Ekki síður er ég spenntur fyrir því að vinna með viðskiptavinum okkar. Markmið okkar er að aðstoða fyrirtæki í hverju skrefi stafrænnar vegferðar, allt frá þarfagreiningu og innleiðingu viðeigandi lausna til áframhaldandi stuðnings og þjónustu. Okkar sérstaða liggur í því að hafa breitt vöruúrval og reynslumikla sérfræðinga sem hafa djúpa þekkingu á stafrænum lausnum fyrir rekstur fyrirtækja. “ segir Ragnar Már Magnússon, framkvæmdastjóri ráðgjafasviðs.

Tengjumst

Við skoðum þetta saman

Ertu með fyrirspurn eða ábendingu til okkar?
Endilega sendu okkur línu og við leysum málið.